19september

Snilld





http://www.youtube.com/watch?v=m4l2UUueH5Q

19. september 2007 klukkan 22:25
Örvar og Unnur
1 athugasemd
03maí

You´ll never walk alone!!


´
Hér eru myndir frá jólahlaðborðinu 2006

http://www.picturetrail.com/orvar




ó já, Liverpoll komnir í  úrslitaleikinn

http://www.youtube.com/watch?v=VyKNTP1QbX4

03. maí 2007 klukkan 17:19
Örvar og Unnur
3 athugasemdir
07febrúar

Litla fćrslan hans Örra

jújú.. Margeir líta stórum augun á skjáinn þegar þau lesa fyrirsögnina! Örvar að fara að blogga..
Hvers þarf maður að gjalda! Thelma er svo frek og þarf alltaf að fá allt sem að hun vill, hun var að biðja um færslu..
En jamm, Það er annars litið að fretta af okkur gömlu hjónunum! Eg er ennþá i smiðanda og vinn á kvoldin í félagsmiðstöðinni á self og Unnsa er að vinna í Flóaskóla!
Nuna er kominn feb sem þýðir aðeins eitt.. fökk jee.. Nú blótum við þorranum og étum hákarl og drekkum íslenskt brennivín!! og kannski að maður taki smá dans..
það er einmitt þorrablot nuna um helgina og eftirvæntingin er svo mikil að eg er orðinn stíflaður i nefinu!
Nenni ekki að hafa þetta langt, ætlaði bara að sýna fóki að eg kann ennþá a lyklaborð og hef ennþá ágæta stafsetningakunnáttu þrátt fyrir góða pásu á skólalífinu..
Heyrðu já... fuck! Ég ætla til DK í sumar! hver er game?

Kv Dalli

Ætla að henda inn nokkrum myndum, bara uppá humorinn.. alltaf gaman að skoða gamlar og góðar myndir!









07. febrúar 2007 klukkan 21:46
Örvar og Unnur
6 athugasemdir
13janúar

Sćtust


Guðmundur Bjarki og Ólöf Vala
13. janúar 2007 klukkan 02:40
Örvar og Unnur
5 athugasemdir
25nóvember

18. nóvember

Jæja jæja

Það eru komnar nýjar myndir frá Skálateig Partyinu og Kornskurðarballinu :)
http://www.picturetrail.com/unnur8

Þetta var virkilega skemmtilegt kvöld með góðum vinahópi.
Læt nokkrar myndir fylgja með.







 





 

 

Sama dag var þessi litla prinsessa skírð.



Eigið góða helgi öll sömul.

Ykkar Unnur
25. nóvember 2006 klukkan 23:53
Örvar og Unnur
11 athugasemdir
11október

Njótiđ augnabliksins


Ég stal þessu af síðunni hennar Huldu minni, endilega svarið þessu um okkur til gamans.
Koss

1. Hvað kallarðu mig?

2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?

3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?

4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?

5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?

6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?

7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?

8. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?

9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?

10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?

11. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?

12. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?

13. Hvernig stráka fíla ég?

14. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?

15. Hvað er mest einkennandi við mig?


16. Hvaða búðir elska ég að fara í?



Hulda og ég á Akureyri í skíða/snjóbrettaferð


Ykkar Unnur

11. október 2006 klukkan 23:59
Örvar og Unnur
6 athugasemdir
19september

HomeSweetHome

Jæja þá er maður komin heim í sveitasæluna aftur, sem er frábært. Alltaf gott að koma heim. En annars var þetta alveg frábær ferð, New York er æðisleg borg. 




Miðvikudaginn 13. september kom lítill engill í heiminn, Ólöf Vala Heimisdóttir. Algjör prinsessa, og vil ég óska Heimi og Sigrúnar til lukku með litlu dömuna.



Hinn litli engillinn Soffía Náttsól stækkaði og dafnaði vel meðan ég var í útlandinu. Algjör dúlla.



Litli sólargeislinn Bryndís Eva var jarðsett í gær, og átti hún alveg einstaklega fallega athöfn. Hvíl í friði, litli engill. Megi góður guð hjálpa Bebbu og Hjölla gegnum þessa miklu sorg.


Ykkar Unnur

19. september 2006 klukkan 22:04
Örvar og Unnur
2 athugasemdir
12september

Latur ađ skrifa..

Eg er voðalega latur að setja inn færslur! Helgin er buin að vera róleg, við vorum arfaslök á föstudaginn en kíktum a Fridays um kveldið og fengum okkur frábæra máltíð og smá drukk. A laugardaginn var sofið út og svo kíktum við Unnur í borgina. Það var ekkert sérstakt á dagskránni en við kíktum í keilu og svo smá i búðir, sem er orðið svona fastir liðir eins og venjulega;)

Nuna eru einungis 4 dagar eftir hérna hja okkur, sem er fáranlega lítið. En við erum lika buin að nýta tímann hérna vel, buin að skoða alveg heilan helling og skemmta okkur vel!

Hvað er málið samt!! Við fórum i bíó um helgina, á Beerfest.. vá hún er ekkert eðlilega fyndin! Eg gerði mig af fifli, eg hló svo mikið;) En hvað er samt málið með BNA.. Beerfest var bönnuð börnum útaf þvi að það sáust brjóst í myndinni!! Guðrun þurfti að sýna skilríki! (reyndar ekki skrítið). Þegar myndin var nýbyrjuð kom lögreglan inn á myndina með vasaljós og fór að tékka á skilríkjum!! Gá hvort að einhverjir krakkar hafi kannski laumast á myndina!! Þetta er svo heimskt lið herna! Þetta er grínmynd og það eina sem að gerist er að það er bölvað einstaka sinnum og svo sjást nokkur brjóst! Og brjóst eru ekki hættuleg og gerir engum mein!! Reyndar var víst lika drukkið bjór lika! En eg trúi ekki að það skipti svona miklu máli..

Eg reyndar nenni ekki að skrifa meira og ætla að láta nokkrar myndir tala fyrir mig;)


Þetta var fyrsta vikan okkar.. Og fyrsti drykkurinn okkar;)

Á fullri ferð!!  Skoðuðum frelsistyttuna og hitt og þetta.


Þessi mynd yrði örugglega of gróf herna í BNA! En allt í lagi að sýna hana á Íslandinu.


Frá keiluferðinni okkar Unnar.. Hún var reyndar að vinna mig á þessum tíma!!


Hérna er sönnun fyrir því!! En ég vann hana samt undir lokin;)


Stelpurnar fundu ser svaka flott og dýr sólgleraugu!! Soldið asnaleg, en fer þeim;)


haha.. Svo verð ég að koma með þessa!! Sjáiði hvað þær myndast vel;)

12. september 2006 klukkan 06:30
Örvar og Unnur
12 athugasemdir
07september

Hetja



Er svartasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir.
Þá líður sem leiftur af skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
 

Vaki guðs englar yfir litlu fallegu prinsessunni, Bryndísi Evu.

Unnur og örvar
07. september 2006 klukkan 19:48
Örvar og Unnur
2 athugasemdir
04september

Strákadagurinn minn..

Þá er komið að strákadeginum mínum! Stelpurnar eru farnar í borgina að versla og ég fekk að vera heima í Tarrytown og má gera hvað sem að ég vilJ Er buinn að taka æfingu í dag og ætla mer að fara i bió og sjá myndina Beerfest sem að er örugglega alger snilld!! En áður en að ég fer í bíó þá ætla ég að segja ykkur örlitið frá hvernig helgin hefur verið hjá okkur. 
Föstudagurinn byrjaði auðvitað á skóla eins og vanalega, vorum búin snemma og fórum strax niðrá lestarstöð. Við biðum þar í langan tíma þvi að við rugluðumst örlítið og misstum af einni lestinni og þurftum að bíða eftir næstu. Hugmyndin var sú að kíkja á MoMA´s eða The museum og modern art.. Og vitiði það að ég ætla bara ekkert að tala meira um það! Þetta var sko ekki sniðugt museum! Við vorum ekki lengi þar og áttum þá góðan tíma til að dunda okkur aðeins, þannig að það var farið í búðir.. vei, vei.. Uppáhaldið mitt!! En senn fór að líða að kveldi og við kíktum á B.B. King Blus Club sem er ljómandi góður Jazz klúbbur. Við sátum þar og sötruðum í góðan tíma og höfðum það ljómandi gott. Fórum reyndar ekki seint heim þvi að lestinn til Tarrytown fer alltaf heim um tvö leytið.

Laugardagurinn var frábær. Lögðum snemma að stað til borgarinnar og byrjuðum á þvi að fara á Intrepid Sea, Air, Space Museum.. og ef að eitthvað sé snilld þá er það þetta museum! Safnið er inní endalaust stóru herskipi. Það var hægt að fara i hálfgerða sjó- og flughers æfingar þarna, við fórum í geðveika flugherma klifruðum upp klifurveggi og gátum fengið að finna tilfinninguna hvernig maður þarf að stíga ölduna þegar maður er að stýra minni skipum. Þetta var allavega mjög skemmtilegt og við vorum þarna i svona 2- 3 tíma.

Eftir safnið ætluðum við að fara i siglingu en hættum snarlega við þar sem að verðrið var alls ekki nógu gott, mikil rigning og smá vindur! Við Íslendingarnir erum ekki vön svona veðri;) Við ákáðum þá að fara bra heim og slaka á um kvöldið þvi að við ætluðum okkur að fara til New Jersey á sunnudeginum í Tívolí, Six Flags, geðveikt stórann og mikinn skemmtigarðJ 


Það var fullt af flugvelum, skriðdrekum, og fullt af dóti fyrir utan á skipinu, en það var bara svo mikil rigning að ég átti í smá erfileikum að taka myndir af öllu.

Magnað tæki:)

Sunnudagurinn byrjaði snemma. Við fórum enn og aftur í borgina með lest og löbbuðum svo þaðan á rútustöðina sem er á Times Square.  Þegar við komum þangað vissum við nottla ekkert hvernig við áttum að komast til NJ og reyndum að finna einhverjar upplýsingar hjá information fólkinu en það var hádegi hjá þeim eða eitthvað. En við löbbuðum allavega aðeins um og þá kom maður upp að Guðrúnu og baust til að hjálpa okkur. Hann fór með okkur að miðasölunni og reddaði þessu öllu fyrir okkur og var voðalega nice gaur. Svo spurði ég hann þegar hann var buinn að redda okkur afhverju í ósköpunu hann væri að hjálpa okkur svona mikið og hann leit á mig og sagði ,, Ég tek pening fyrir að hjálpa ykkur” Þá var þetta ÓBERMI einhver vitleysingur sem að hjálpar heimskum túristum sem að eru hálf viltir og lætur þá borga sér peninga!! Við auðvitað þorðum ekki annað en að borga honum pening þvi að þetta hefði alveg getað verið eitthver klikkhaus;)

En jamm, við vorum í 2-3 tíma á leiðinni og komust svo loksins á leiðarenda til Six Flags. Þetta var endalaust stórt og 4 risastórir rússibanar!! Mer leið eins og smákrakka þarna inni eins og þið sjáið á þessari mynd;)


Við vorum þarna í 8 tíma og náðum samt ekki að gera allt. Við fórum í fullt af geðveikum tækjum, Guðrún þorði reyndar ekki í öll en við sendum hana bra í barnatækin á meðan. Við fórum svo undir lokin í hæsta og hraðasta rússibana í heimi og ég er ennþá með smá hausverk eftir hann! Hef aldrei lent í öðru eins.. Við náðum reyndar ekki næstum þvi að gera allt þarna og eigum þvi eftir að fara þangað aftur.Við fórum svo með rútunni heim um hálf níu um kvoldið og lukum þannig frábærum degiJ


Þarna er einn af rússibönunum! og ekki sá stæðsti!!


Við fórum á höfrunga sýningu sem var geðveikt flott, en það var frekar erfitt að ná góðri mynd!! Hann er allavega í dýfingum þarna;)


Frábær helgi á enda..

04. september 2006 klukkan 23:38
Örvar og Unnur
5 athugasemdir

Spakmćli dagsins

As long as the world is turning and spinning, we´re gonna be dizzy and we´re gonna make mistakes!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit